Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands verða afhent við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag kl. 16:15. Nýsköpunarverðlaun forseta Íslands voru fyrst veitt árið 1996. Markmið þeirra er að verðlauna námsmenn sem unnið hafa framúrskarandi starf við úrlausn verkefna sem styrkt eru af Nýsköpunarsjóði námsmanna.

Sex verkefni eru tilnefnd til verðlaunanna í ár: 1.        Gráa gullið sem er unnið af Sigurlaugu R. Sævarsdóttur. 2.        Pattern Finder – Greiningarforrit til munsturgreiningar sem unnið er af Gunnsteini Hall. 3.        ICCE – Icelandic Carbon Credit Exchange sem unnið er af Bergþóru Arnarsdóttur. 4.        Mælingar á þéttleikabreytingum í aftauguðum rýrum vöðvum sem er unnið af Guðfinnu Halldórsdóttur. 5.        Rafskautanet fyrir fingurendurhæfi en það er unnið af Örnu Óskarsdóttur og Tinnu Ósk Þórarinsdóttur. 6.        Víxlflæði á súrefni milli æða í sjónhimnu manna sem er unnið af Agli Axfjörð Friðgeirssyni.

Við athöfnina munu forseti Íslands, fulltrúi stúdenta í stjórn Nýsköpunarsjóðs námsmanna og formaður dómnefndar flytja ávörp.