Nýskráningar einkahlutafélaga í mars voru 261. Síðustu 12 mánuði hefur nýskráningum einkahlutafélaga því fjölgað um 14% í samanburði við 12 mánuði þar á undan. Alls voru 2.465 ný einkahlutafélög skráð á tímabilinu, borið saman við 2.161 á fyrri 12 mánuðum. Þetta kemur fram á vef Hagstofu Íslands í dag.

Hlutfallsleg fjölgun nýskráninga var mest í fasteignaviðskiptum þar sem þeim fjölgaði úr 230 í 394, eða um 71% á síðustu 12 mánuðum. Meðal annarra greina þar sem nýskráningum hefur fjölgað má einnig nefna leigustarfsemi og ýmsa sérhæfða þjónustu þar sem nýskráningum fjölgaði úr 157 í 204, eða um 30% og rekstur gististaða og veitingarekstur þar sem fjölgun var úr 142 í 172 nýskráningar, eða 21%.

Skráðum gjaldþrotum fækkar um 15%

Samkvæmt tölum Hagstofunnar voru 120 skráð gjaldþrot í mars. Gjaldþrotum fyrirtækja síðustu 12 mánuði hefur samkvæmt því fækkað um 15% í samanburði við 12 mánuði þar á undan.

Alls voru 673 fyrirtæki tekin til gjaldþrotaskipta á tímabilinu, borið saman við 792 á fyrra tímabili. Gjaldþrotum fækkaði frá fyrri 12 mánuðum í öllum helstu atvinnugreinabálkum nema í leigustarfsemi og ýmissi sérhæfðri þjónustu, þar sem þeim fjölgaði um 6% frá fyrra tímabili, úr 34 í 36.