Guðmundur Viðarsson og Mjöll Daníelsdóttir, kona hans, hafa keypt Kaffivagninn á Grandagarði. Þau Stefán Kristjánsson og Kolbrún Guðmundsdóttir hafa rekið veitingastaðinn við Reykjavíkurhöfn í 30 ár eða frá árinu 1983.

Haft er eftir Guðmundi í Morgunblaðinu í dag að hann hlakki til að taka við rekstrinum og muni gamli tíminn fá að halda sér.

Viðskiptablaðið fjallaði um söluna á Kaffivagninum í fyrra. Veitingastaðurinn hefur verið til sölu frá vorinu 2011.