Forsetaframbjóðandinn Mitt Romney hefur játað sig sigraðan í baráttunni um að verði næstu forseti Bandaríkjanna.Talningu er nú lokið í flestum fylkjum Bandaríkjanna.

Obama hélt sigurræðu frammi fyrir stuðningsmönnum sínum í dag þar sem hann þakkaði góða kosningabaráttu. Um sama leyti ávarpaði Romney stuðningsmenn sína þar sem hann þakkaði bæði þeim og fjölskyldu sinni fyrir stuðninginn og sagði meðal annars að eiginkona sín hefði orðið dásamleg forsetafrú.