Oddný Harðardóttir hefur ákveðið að bjóða sig fram til formanns Samfylkingarinnar. Þetta kemur fram á Facebook síðu hennar nú í morgun.

Oddný hefur setið á Alþingi fyrir Samfylkinguna frá árinu 2009, hún var fjármálaráðherra frá 2011 til 2012 og fjármála og efnahagsráðherra á árinu 2012.

Oddný segist m.a. vilja styrkja stöðu ungs fólks barna­fjöl­skyldna, aldraðra og ör­yrkja. Hún vill vinna að því að heilbrigðisþjónusta verði ókeypis og að sett verði ný stjórnarskrá. Yfirlýsing Oddnýjar í heild sinni:

„Kæru félagar

Ég vil leggja mig alla fram við að bæta íslenskt samfélag. Þess vegna hef ég ákveðið að gefa kost á mér til formanns Samfylkingarinnar.

Verkefni okkar er að styrkja stöðu ungs fólks, barnafjölskyldna, aldraðra og öryrkja. Ójöfnuð sem birtist í óréttlátri skattastefnu og aukinni gjaldtöku í heilbrigðis- og menntakerfinu þarf að stöðva strax. Til þess þarf samstillt átak jafnaðarmanna og verkalýðshreyfingarinnar.

Ég vil vinna af krafti að því að heilbrigðisþjónusta verði ókeypis, að sett verði ný stjórnarskrá, að arðurinn af auðlindum skili sér til okkar allra og lífvænlegu umhverfi til komandi kynslóða. Til þess þarf sterka Samfylkingu.

Þegar baráttumálin snúast um jafnrétti og réttlæti er auðvelt að stækka hópinn og fá hugsjónaeldinn til að brenna í hjörtum jafnaðarmanna.

Ég óska eftir stuðningi þínum og samstarfi.

Með baráttukveðjum,
Oddný G. Harðardóttir“

Magnús Orri Schram og Helgi Hjörvar hafa þegar boðið sig fram til formanns Samfylkingarinnar en landsfundur verður haldinn þann 4. júní nk.