Symbionic Leg er nýjasta viðbótin í vörulínu Össurar og er til sölu á öllum helstu mörkuðum. Þetta er heildstæð lausn sem veitir einstaka virkni fyrir þá sem eru aflimaðir fyrir ofan hné.

Í lok mánaðarins fer fram Ólympíumót fatlaðra í Lundúnum. Helgi Sveinsson mun taka þátt á mótinu á gervifæti frá Össuri. Hann sýndi VB sjónvarpi hinn margumtalaða Symbionic Leg.