Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður VR, tekur við Vilhjálmi Egilssyni sem formaður stjórnar Rannsóknarseturs verslunarinnar. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Rannsóknarsetri verslunarinnar.

RSV er sjálfseignarstofnun sem að atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið stendur fyrir ásamt Samtökum verslunar og þjónustu, VR, Háskólanum á Bifröst og Bílgreinasambandinu.