Ólafur K. Ólafsson, lögreglustjóri og sýslumaður Snæfellinga, hefur verið settur lögreglustjóri á Suðurnesjum frá 1. október til áramóta.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá dómsmálaráðuneytinu.

Jafnframt hefur Jón F. Bjartmarz, yfirlögregluþjónn hjá ríkislögreglustjóra, verið settur aðstoðarlögreglustjóri embættisins og Halldóri Halldórssyni, fjármálastjóra lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, verið falið að taka að sér fjármálastjórn þess til sama tíma.

Embætti lögreglustjórans á Suðurnesjum verður auglýst til umsóknar og veitt frá og með næstu áramótum.