Alþjóðasjónvarpsstöðin CNN mun um helgina senda út þátt um framtíð orkumála og er viðtal við Ólaf Ragnar Grímsson forseta Íslands meðal helstu efnisatriða þáttarins.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá skrifstofu forseta.

Charles Hodson, einn helsti fréttaþulur CNN, tók viðtalið við forseta á Bessastöðum í aprílmánuði en þá kom sérstakt tökulið frá CNN til landsins og safnaði myndefni um Ísland.

Þátturinn ber heitið Principal Voices og verður sýndur á heimsrás CNN fjórum sinnum um helgina: laugardaginn 21. júní kl. 6 að morgni að íslenskum tíma og svo kl. 14 og kl. 19 síðdegis; sunnudaginn 22. júní verður þátturinn sýndur kl. 6 að morgni að íslenskum tíma.