Ölgerðin Egill Skallagrímsson hefur fest kaup á Kú mjólkurbúi. Í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu segir að með kaupunum muni staða Kú á mjólkurmarkaði styrkjast til muna.

Októ Einarsson stjórnarformaður Ölgerðarinnar segir að: „Kú hefur verið ötull frumkvöðull frá stofnun og barist af einurð og afli gegn fákeppni á mjólkurmarkaði. Með kaupum Ölgerðarinnar eykst sá slagkraftur án þess þó að að breyta frumkvöðlahugsjón fyrirtækisins þar sem hagur neytenda og framsýni ræður ríkjum.“

Kú mjólkurbú var stofnað árið 2009 og hófst framleiðsla ári síðar. „Við höfum lent í ýmsu og það hefur ekki alltaf verið auðvelt að berjast á þeim fákeppnismarkaði sem ríkt hefur. Stuðningur Ölgerðarinnar styrkir okkur í þeirri baráttu sem framundan er og hleypir nýjum krafti í okkur,“ segir Ólafur Magnússon í tilkynningunni. Hann mun starfa áfram með Kú mjólkurbúi.

Í fréttatilkynningunni segir einnig að framundan sé fjöldi nýjunga frá Kú sem verði kynntar á næstu mánuðum. segir Guðni Þór Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Ölgerðarinnar að „Það eru spennandi tímar framundan og ég hlakka til að sjá öflugri Kú takast á við þá ójöfnu samkeppni sem ríkt hefur. Neytendur verða sem fyrr í fyrsta sæti hjá Kú mjólkurbúi,“