Olís ætlar að opna nýja og fullkomna metanafgreiðslu á þjónustustöð félagsins í Álfheimum í Reykjavík og aðra á Akureyri í vor.

Fram kemur í tilkynningu frá Olís að vel hafi gengið í fyrstu metanafgreiðslu Olís sem opnaði í Mjódd i fyrrasumar. Haft er eftir Jóni Ó. Halldórssyni, framkvæmdastjóra smásölu- og eldsneytissviðs Olís, að mikil ánægja sé með metanafgreiðsluna í Mjódd og hafi viðskiptavinum fyrirtækisins fjölgað. Með þvi að opna metanafgreiðslu í Álfheimum og á Akureyri aukist þjónustan til muna.

Metanið er framleitt í Álfsnesi og unnið úr hauggasi sem verður til úr lífrænum úrgangi sem þar er urðaður. Við vinnsluna verður til vistvænt íslenskt eldsneyti. Á Akureyri verður Olís í samstarfi við Norðurorku sem mun framleiða metangas en Olís mun sjá um markaðssetningu og sölu í gegnum sölukerfi félagsins, að því er segir í tilkynningunni.