Forstjóri norrænu kauphallarsamstæðunnar OMX segir í samtali við Viðskiptablaðið að félagið sé í "stöðugu sambandi" við Kauphöll Íslands.

Hann segir viðræður um að Kauphöllin sameinist OMX hafa átt sér stað en tekur fram að ekki hafi enn verið sest að samningaborðinu. Þórður Friðjónsson, forstjóri Kauphallar Íslands, sagði Kauphöllina vera að kanna möguleikann á því að renna inn í OMX í samtali við Viðskiptablaðið í síðustu viku. Hann sagði einnig í samtali við Viðskiptablað Morgunblaðsins í síðustu viku að Kauphöllin væri að "skoða rækilega samstarfsmöguleikana við OMX og hvort rétt sé að tengja Kauphöllina öðrum kauphöllum til lengri tíma litið"

Rétt er að taka fram að samningaviðræður hafa ekki hafist en viðræður hafa tvímælalaust átt sér stað og Kauphöllin hefur fengið tilboð frá OMX um samruna, samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins. Páll Harðarsson, forstöðumaður rekstrarsviðs Kauphallarinnar, sagði í samtali við Viðskiptablaðið að ákvörðun um hvað verði gert geti legið fyrir í haust eða byrjun vetrar.

Forstjóri OMX sagði í samtali við Financial Times í síðustu viku að OMX hefði fjárhagslegt bolmagn til þess að taka yfir Kauphöllina ef til þess kæmi.

Markaðsvirði skráðra fyrirtækja í Kauphöllinni hefur þrefaldast á síðustu þremur árum og nemur um 1.200 milljörðum. Þótt að markaðurinn sé smár þá er hann einn sá arðbærasti í Evrópu og hækkaði vísitalan um 58% á síðasta ári. Markaðsvirði félaga í Kauphöllinni er um 120% af landsframleiðslu.

Væntanleg samþjöppun kauphalla í Evrópu getur haft áhrif á ákvörðun Kauphallarinnar um að sameinast OMX, segja heimildamenn Viðkiptablaðsins. Evrópska kauphöllin Euronext á í yfirtökuviðræðum við kauphöllina í London (LSE). Deutsche Börse reyndi einnig að taka yfir LSE fyrr á þessu ári. Forstjóri Kauphallarinnar segir að ef Euronext takist ekki að taka yfir LSE þá sé það raunhæfur möguleiki að LSE og OMX renni saman. Hann telur það gott fyrir Kauphöllina að vera hluti af OMX ef það gerist þar sem íslensk fyrirtæki sæki í vaxandi mæli til Bretlands.

Kauphöllin í Kaupmannahöfn rann inn í OMX í nóvember en áður gerðust kauphallirnar í Helsinki og Stokkhólmi meðlimir. Kauphallir Eystrasaltsríkjanna þriggja -- Eistlands, Lettlands og Litháen -- eru einnig hluti af OMX. Kauphöll Íslands og norska kauphöllin standa einar fyrir utan samstæðuna.