Árásarmaðurinn sem myrti lögreglukonu á götum Parísar í gærmorgun hefur tekið fólk í gíslingu í matvöruverslun í borginni. Þetta kemur fram á vef AFP fréttastofunnar.

Þar segir einnig að franska lögreglan telji nú tengsl á milli árásarmannsins og Kouachi-bræðranna sem réðust á ritstjórnarskrifstofur Charlie Hebdo í fyrradag.

Borin hafa verið kennsl á manninn sem drap lögreglukonuna og hefur lögreglan handtekið tvær manneskjur sem eru honum tengdar.