Rætt er um Opin kerfi sem „svalasta upplýsingafyrirtæki Íslands“ á nokkrum blaðsins í nýjasta tölublaði tímaritsins Business Review Europe. Umfjöllunarefni blaðsins er samstarf Opinna kerfa við Verne Global, sem m.a. rekur samnefnt gagnaver í Reykjanesbæ.

Rætt er við Gunnar Guðjónsson, forstjóra Opinna kerfa og tíundaðar nokkrar ástæður sem liggja að baki samstarfinu, rætt um starfsfólkið, samskipti við birgja, nýja tækni og samkeppnishæfni upplýsingatækni á Íslandi.

Umfjöllun Business Review Europe