Þorgeir Haraldsson hefur verið ráðinn yfirflugstjóri Icelandair. Þorgeir tekur við starfinu af Hilmari Baldurssyni sem nýlega var ráðinn flugrekstrarstjóri Icelandair.

Þorgeir er fæddur 1954 og hóf störf sem flugmaður á Fokker 27 í innanlandsflugi Flugleiða 1986. Frá árinu 1990 starfaði hann sem flugmaður og síðar flugstjóri á þotum Icelandair. Var ráðinn þjálfunarflugstjóri á Boeing 757/767 þotur árið1997 og hefur gengt starfi staðgengils yfirflugstjóra síðan í september 2004.