Þorsteinn Már Baldvinsson, stjórnarformaður Glitnis hvetur alla hluthafa Glitnis til að samþykkja tilboð íslenska ríkisins um kaup á nýju hlutafé í Glitni banka að upphæð 600 milljónir evra.

„Ég tel rétt að allir hluthafar bankans, stórir og smáir viti þessa skoðun mína,“ segir Þorsteinn Már í tilkynningu frá honum sem send hefur verið fjölmiðlum.

„Ég treysti því að ríkisvaldið muni koma til móts við hluthafana sem verða fyrir tjóni vegna þessarar ráðstöfunar og bjóði þeim sanngjarnt úrræði sem geti á komandi árum dregið úr þessu tjóni. Ég tel að ekki sé lengur nein óvissa um það, að eftir hluthafafund Glitnis í næstu viku verði bankinn í meirihlutaeigu íslenska ríkisins og þar með afar traustur banki,“ segir Þorsteinn Már og bætir við að hann telji að með þessum hætti séu allar innistæður viðskiptavina bankans tryggðar.“

Þá kemur fram að stjórn Glitnis og stærstu hluthafar hafa þegar lýst því yfir að þeir muni styðja þá tillögu að ríkið kaupi hlut í Glitni banka og að þeir muni greiða atvæði með þeirri tillögu á hluthafafundi Glitnis sem haldinn verður 11. þessa mánaðar.

„Mér finnst einnig brýnt að aðilar slíðri sverðin og einbeiti sér að því að skapa ró um Glitni,“ segir Þorsteinn Már í tilkynningunni.

„Það þjónar hagsmunum allra hluthafa Glitnis og viðskiptavina og dregur úr óvissu sem hefur mjög neikvæð áhrif á markaði við núverandi aðstæður.“

Að lokum segir Þorsteinn Már:

„Ég fagna sérstaklega orðum forsætisráðherra þar sem hann ítrekaði að innistæðueigendur okkar hér á landi þyrftu ekki að óttast sinn hag, ríkið myndi tryggja sparifjáreigendur. Það væri ástæðulaust að óttast það að innistæður hér á landi væru ekki nægilega tryggar. Eins fagna ég orðum seðlabankastjóra þar sem hann tók í sama streng.“