Samkeppniseftirlitið hefur hafnað ósk Valitors um undanþágu frá banni samkeppnislaga við verðsamráði til að ákvarða og setja samræmt milligjald á innanlandsmarkaði fyrir kreditkortaviðskipti.

Þetta kemur fram á vef Samkeppniseftirlitsins en niðurstaðan byggir á því að Valitor hafi ekki tekist að sýna fram á með fullnægjandi hætti að öll skilyrði samkeppnislaga séu uppfyllt.

Forsaga málsins er sú að Samkeppniseftirlitinu barst ósk um undanþágu frá samráðsbanni samkeppnislaga frá Valitor hf.

Óskaði Valitor eftir því að Samkeppniseftirlitið samþykki að félagið ákveði og setji svonefnt samræmt milligjald  á innanlandsmarkaði fyrir greiðslukortaviðskipti.

Milligjaldið er greiðsla frá færsluhirði fyrir hönd söluaðila til útgefenda kreditkorta. Er greiðslan sögð fyrir þá þjónustu sem útgefendur korta veita söluaðilum vegna viðskipta þar sem kreditkort eru notuð sem greiðslumiðill.

Niðurstaða Samkeppniseftirlitsins var að almennt séð sé ekki unnt að útiloka að setning samræmds milligjalds geti uppfyllt kröfur samkeppnislaga.

Sjá nánar vef Samkeppniseftirlitsins.