World Travel verðlaunin verða afhent á ítölsku eyjunni Sardiníu á laugardaginn. Á vef Túrista.is kemur fram að þetta séu ein þekktustu verðlaunin í ferðaþjónustunni, nokkurs konar „Óskarsverðlaun ferðageirans".

Í flokki gististaða eru tilnefningar bundnar við lönd og eru 20 íslensk hótel tilnefnd í hinum ýmsum flokkum. Á meðal flokka sem keppt er í er: Besta hótelið, Besta hönnunarhótelið, besta hótelið fyrir vinnuferðir og besta íbúðarhótelið.

Þau hótel sem tilnefnd eru sem besta hótelið á Íslandi eru:

  • Alda Hótel Reykjavík
  • Grand Hótel Reykjavík
  • Hilton Reykjavík Nordica
  • Hótel Borg
  • Hótel Holt
  • Hótel Keflavík
  • ION Luxury Adventure Hotel
  • Radisson Blu 1919

Hægt er sjá tilnefningar í öllum flokkum á vefsíðu Túrista.is.