Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,65% í dag en heildarvelta í Kauphöllinni nam 5,8 milljörðum króna. Þar af var rúmlega 980 milljóna króna velta á hlutabréfamarkaði.

Þær voru rauðar tölurnar í Kauphöllinni en þrjú félög hækkuðu í dag, Fjarskipti um 0,40% og N1 um 0,19%. Össur hækkaði mest, um 2,82% í einum viðskiptum.

Reginn lækkaði mest í dag, eða um 2,03%