Össur hf. hefur keypt breska stuðningstækjafyrirtækið Innovative Medical Products Holdings Ltd. fyrir 18,5 milljónir Bandaríkjadala. IMP Holdings er framleiðslu-, sölu- og dreifingarfyrirtæki á sviði stuðningstækja og stærsti sölu- og dreifingaraðili á stuðningstækjum í Bretlandi. Össur tekur við rekstri IMP Holdings Ltd. frá og með deginum í dag segir í frétt fyrirtækisins.

"Það hefur verið yfirlýst markmið Össurar að færa sig enn frekar inn á markað fyrir stuðningstæki og kaupin á IMP Holdings eru mikilvægur áfangi í þeirri sókn," segir Jón Sigurðsson forstjóri Össurar hf.

Í fréttinni kemur fram að IMP hefur heildstæða vörulínu í stuðningstækjum sem fellur vel að vörulínum Össurar. Sterk markaðshlutdeild, þekking og reynsla IMP mun auka tækifæri félagsins til frekari sölu á stuðningstækjum víðar í Evrópu.

Helsti ávinningur af kaupunum:

Sterkt sölukerfi í Bretlandi
Flýtir uppbyggingu á sölukerfi stuðningstækja Össurar í Evrópu
Rekstrarhagræðing vegna samlegðaráhrifa

IMP Holdings var stofnað 1980 og eru starfsmenn 91 talsins. IMP er þekkt fyrirtæki, hefur sterka markaðsstöðu og rekur fjórar starfsstöðvar í Bretlandi. IMP sérhæfir sig í hönnun og framleiðslu á hnjá-, mjaðma- og bakspelkum sem eru seldar undir nafni Medistox og Technology in Motion. Fyrirtækið hlaut virt hönnunarverðlaun í Bretlandi (CBI New Product Awards) fyrir eina af vörum sínum á síðasta ári.

Áætlaðar tekjur IMP Holdings fyrir árið 2005 eru rúmar 14 milljónir Bandaríkjadala, leiðrétt EBITDA er tæp 20% og framlegð um 54%. Áætlað er að verja um einni milljón dala til endurskipulagningar og uppbyggingar á næsta ári sem talið er að skili sér í rúmlega milljón dala rekstrarhagræði frá og með árinu 2007. Eins og áður hefur komið fram var samstæða Össurar umframfjármögnuð við kaupin á Royce Medical sl. sumar og er það fjármagn nú nýtt við kaupin á IMP Holdings.