Sú ákvörðun að niðurgreiða skuldir einstaklinga vegna gengishruns er í verki viðurkenning á því að íslenska krónan er ónothæf. Þetta kemur fram í grein sem Þorsteinn Pálsson, fyrrverandi ráðherra og formaður Sjálfstæðisflokksins, skrifar í Fréttablaðið í dag.

„Ríkisstjórnin þreytist ekki á að segja þjóðinni að hrun krónunnar hafi verið mesta gæfa þjóðarinnar í alþjóðlegu fjármálakreppunni. Á sama tíma segir hún að gengishrunið hafi verið forsendubrestur sem skattborgararnir þurfi að bæta þeim sem skulduðu húsnæðislán. Enginn slær hendi á móti peningum. En það sem flestir eiga erfitt með að skilja er þetta: Hvernig gat gengishrunið bæði verið gæfa og bótaskyldur forsendubrestur?"

„Eðli gengisfellingar er að flytja fjármuni frá heimilum til útflutningsfyrirtækja. Krafan um að fá forsendubrestinn bættan bendir ótvírætt til þess að almenningur sætti sig ekki við að gjaldmiðillinn sé notaður með þessum hætti. Gengisfellingin sem ríkisstjórnin lofsyngur er einfaldlega brestur á forsendum í augum kjósenda. Þegar stjórnmálamenn viðurkenna bótakröfu af þessum sökum hafa þeir í reynd fallist á að gengisfellingar eru ekki lukkuhjól eða gæfumerki."

„Sú ákvörðun meirihluta Alþingis að niðurgreiða skuldir einstaklinga vegna gengishruns er í verki viðurkenning á því að gjaldmiðillinn er ónothæfur. Það er eins og að hrópa upp í vindinn að afneita því með orðum þegar verkin segja aðra sögu. Að þessu virtu má segja að Framsókn sé með sterkustu rökin fyrir nýjum stöðugum gjaldmiðli."

Þorsteinn segir að engin önnur Evrópuþjóð hafi greitt hafn háar skaðabætur úr ríkissjóði vegna tjóns sem gjaldmiðillinn hafi valdið.

„Forsætisráðherra segir reyndar að það sé heimsmet. Eftir lögmáli rökræðunnar er hin hliðin á því meti lélegasti gjaldmiðill í heimi."

"Þá kunna einhverjir að spyrja: Er ekki ljómandi gott að hafa kerfi þar sem heimilin borga uppbætur til útflutningsfyrirtækjanna og ríkissjóður borgar heimilunum skaðabætur fyrir að hafa greitt uppbæturnar? Verkurinn er sá að það kerfi er uppskrift að óðaverðbólgu. Það er svo vel þekkt Íslandssaga að óþarfi er að ganga á vegginn til að læra þau sannindi."