Svo gæti farið að breytingar yrðu gerðar á landvinnslu Samherja á Stöðvarfirði innan tíðar og jafnvel er hugsanlegt að félagið hætti vinnslu þar. Gestur Geirsson, framkvæmdastjóri landvinnslu Samherja, hélt í
gærdag fund með trúnaðarmanni starfsmanna, starfsmönnum félagsins
og fulltrúum verkalýðsfélaganna á staðnum. Um kvöldið átti hann
síðan fund með fulltrúa sveitastjórnarinnar í Austurbyggð.

Á þessum fundum lagði Gestur fram eftirfarandi bréf frá Samherja þar sem ástæður hugsanlegra aðgerða voru tíundaðar:

"Rekstrarumhverfi fiskvinnslu á Íslandi hefur versnað mjög á síðustu misserum. Kemur þar margt til en sterk staða krónunnar, ásamt lágu afurðaverði á ýsu, karfa og ufsa gera reksturinn mjög erfiðan.

Allar líkur benda til þess að gengi krónunnar haldist áfram
sterkt, ekki síst vegna mikillar uppbyggingar á Austurlandi.
Ástand fiskistofna og markaðsaðstæður eru þannig að líklegt er að
ekki verði hækkun á afurðaverði næstu misserin.  Auk þess er
tilflutningur á  aflaheimildum frá stærri fiskiskipum til smábáta
staðreynd. Við samdrætti í aflaheimildum  hefur verið brugðist með
aukinni landvinnslu á kostnað sjófrystingar á bolfiski. Nú rekur
Samherji hf. aðeins einn frystitogara á bolfiskvinnslu, samanborið
við 5 þegar mest var. Það er því ljóst að til að tryggja
áframhaldandi landvinnslu þarf að sameina vinnslur til að ná fram
aukinni hagræðingu og mæta þannig lækkandi tekjum og auknum
kostnaði.

Það er mat stjórnenda Samherja að rekstur landvinnslunnar verði
best tryggður með því að beina sem mest af  landvinnslu félagsins
til Dalvíkur. Þrátt fyrir að hafa fjárfest á Stöðvarfirði fyrir
tugi milljóna króna á undaförnum árum eru fyrirliggjandi mjög
verulegar fjárfestingar í húsnæði til að uppfylla þær ströngu
kröfur sem gerðar eru til matvælaframleiðslu í dag, m.a. af  af
hálfu viðskiptavina okkar svo og opinberra aðila hérlendis og
erlendis. Af framansögðu má því vera ljóst að við stöndum frammi
fyrir eftirfarandi valkostum varðandi Stöðvarfjörð:


-         Fara í samstarf við heimamenn með það fyrir augum
að selja eða leigja frystihúsið.


-         Breyta vinnslunni í saltfiskverkun með umtalsverði
fækkun starfsfólks.


-         Segja öllum starfsmönnum á Stöðvarfirði upp og
hætta þar rekstri.


Burtséð frá þessu máli er ljóst að bjart er framundan í
atvinnumálum í Austurbyggð. Með tilkomu jarðganganna á vori
komanda mun fjarlægðin frá Stöðvarfirði til Reyðarfjarðar verða
svipuð og hún er frá Egilsstöðum og Norðfirði. Hér verður því um
eitt atvinnusvæði að ræða þar sem vaxandi eftirspurn er eftir
vinnuafli og atvinnumöguleikum fjölgar jafnt og þétt. Ef
niðurstaðan verður sú að til uppsagna komi verður það ákveðið
áfall fyrir sveitarfélagið en ef til vill ekki eins mikið og ella
í ljósi þess sem að framan er sagt. Komi til uppsagna starfsfólks
verður þeim, sem sagt verður upp störfum, boðin vinna hjá
fyrirtækinu á öðrum stað. Reiknað er með að vinnsla verði með
óbreyttu sniði fram á sumar, eða þar til jarðgöngin verða opnuð en
þá má vænta breytinga.  Alls er um að ræða 35 stöðugildi hjá
félaginu á Stöðvarfirði.

Samherji mun á næstu vikum ræða við alla aðila málsins um hvaða
leiðir eru færar í þeirri stöðu sem upp er komin.