Pálmi V. Jónsson prófessor og yfirlæknir öldrunarlækningadeild á Landspítalanum var tekjuhæstur meðal lækna og tannlækna á landinu á síðasta ári, en tekjur hans námu 7,2 milljónum króna að jafnaði á mánuði, samkvæmt álagningarskrám ríkisskattstjóra. Þess ber að geta að stór hluti tekna Pálma á síðasta ári var einskiptisgreiðsla vegna séreignarsparnaðar hjá lífeyrissjóði.
Þetta er meðal þess sem fram kemur í tekjublaði Frjálsrar verslunar sem kom út í síðustu viku. Í blaðinu má finna upplýsingar um tekjur ríflega 3.700 Íslendinga. Að þessu sinnir eru tveir nýir flokkar í blaðinu. Annars vegar yfir tekjur áhrifavalda á samfélagsmiðlum og hins vegar fasteignasala.
Næst launahæstur var með rétt tæplega 2 milljónum lægri tekjur á mánuði, eða 5,1 milljón króna. Það var Þorvaldur Ingvarsson bæklunarskurðlæknir og yfirmaður hjá Össuri. Þar á eftir með um hálfri milljón minna kemur Eiríkur Jónsson þvagfæraskurðlæknir og yfirlæknir á Landspítalanum, með 4,4 milljónir króna.
Fimm tekjuhæstu læknar og tannlæknar ársins 2018:
- Pálmi V. Jónsson, próf.öldrunarlæknir, yfirlæknir Landsp. 7,215 milljónir króna
- Þorvaldur Ingvarsson, bæklskurðl. yfirm. hjá Össuri 5,121 milljónir króna
- Eiríkur Jónsson, þvagfæraskurðlæknir, yfirlæknir 4,437 milljónir króna
- Vilhjálmur Ari Arason, læknir bráðamóttöku LSH. 4,298 milljónir króna
- Sigfús Þór Nikulásson, meinafr. lektor HÍ 3,936 milljónir króna
Útreikningar Frjálsrar verslunar byggja á útsvarsskyldum tekjur á árinu 2018 og þurfa þær ekki að endurspegla föst laun viðkomandi. Munurinn getur falist í launum fyrir setu í nefndum og önnur aukastörf og hlunnindi vegna kaupréttarsamninga. Í launum sumra kann að vera falinn bónus vegna starfa á fyrri ára. Miðað er við útsvarsstofn samkvæmt álagningarskrá. Í tölunum eru ekki fjármagnstekjur, t.d. af vöxtum, arði eða sölu hlutabréfa. Sleppt er skattfrjálsum dagpeningum, bílastyrkjum og greiðslum í lífeyrissjóði.
Tekjublað Frjálsrar verslunar er komið út. Finna má blaðið á helstu sölustöðum en einnig má panta eintak
hér
.