Play hefur bætt spænsku áfangastöðunum Mallorca og Malaga við sumaráætlun sína árið 2022. Flugfélagið mun nú selja flug til sex áfangastaða á Spáni en flugfélagið býður nú þegar upp á áætlunarflug til Barcelona, Tenerife, Alicante og Gran Canaria. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu.

Flogið verður einu sinni í viku, á miðvikudögum, til Palma á Mallorca og einu sinni í viku, á sunnudögum til Malaga.

Flugfélagið tilkynnti einnig nýlega um að það hafi bætt við Stafangur og Þrándheimi í Noregi ásamt Gautaborg í Svíþjóð við sumaráætlun sína. Flug til Gautaborgar hefst í lok maí og flogið verður til og frá borginni tvisvar í viku. Þá verður flogið tvisvar í viku til Stafangurs og Þrándheims og hefst flug einnig í lok maí.

Birgir Jónsson, forstjóri Play:

„Það er óhætt að segja að Íslendingar njóti sín vel á Spáni en frá því Play hóf miðasölu varð strax gríðarleg eftirspurn eftir farmiðum til Spánar. Við finnum einnig vel fyrir áhuga Spánverja á að koma til Íslands. Nýju áfangastaðirnir gefa þeim eldri ekkert eftir enda eru þetta sannkallaðar paradísarborgir og við hlökkum til að fljúga sólþyrstum Íslendingum á nýja staði.“