Promens hf., dótturfélag Atorku Group, hefur ákveðið að reisa nýja hverfisteypuverksmiðju í Póllandi til framleiðslu á vörum úr plasti. Bygging verksmiðjunnar hefst innan fárra vikna og tekur hún til starfa á miðju næsta ári segir í tilkynningu til Kauphallarinnar.

Verksmiðjan verður byggð á 5,6 hektara lóð í nýju iðnaðarsvæði í Miedzyrzecz þar sem Bonar Polska Sp. Z o.o, dótturfyrirtæki Promens hefur starfrækt verksmiðju síðan árið 2001. Upphafleg stærð verksmiðjunnar verður um 9.000 fermetrar en mögulegt er að rúmlega tvöfalda stærð hennar. Nýja verksmiðjan verður byggð samkvæmt nýjasta framleiðslu-fyrirkomulagi og mun hún auka framleiðslugetu fyrirtækisins í Póllandi umtalsvert.

Í tilkynningunni segir að verksmiðjan sé vel staðsett nálægt Poznan í Póllandi þar sem gott framboð er af hæfu starfsfólki. Verksmiðjan er byggð til þess að mæta vaxandi markaði fyrir hverfisteyptar vörur bæði í austur og vestur Evrópu, markaði sem Promens hefur sterka stöðu á og sér mikil tækifæri til frekari vaxtar. Í dag eru starfsmenn Bonar Plastics Polska 90 talsins og framleiðir fyrirtækið vörur fyrir breiðan hóp viðskiptavina bæði í austur og vestur Evrópu. Framkvæmdastjóri Bonar Plastics Polska er Tomasz Dyszkant.

Promens hf. er stærsta fyrirtæki heims á sviði hverfisteyptra plastvara. Fyrirtækið rekur 21 verksmiðju í 10 löndum og 4 söluskrifstofur í Asíu. Starfsmenn Promens eru um 1600.