Qantas er besta og öruggasta flugfélag í heimi samkvæmt mati Airline ratings . 448 félög eru metin af síðunni en 137 þeirra fá sjö stjörnur af sjö mögulegum fyrir öryggi. Icelandair fær einnig sjö stjörnur fyrir öryggi en kemst þó ekki inn á topp tíu listann. Wow Air fær fimm stjörnur.

Þrjú félög fá einungis eina stjörnu fyrir öryggi. Það eru Kam Air, Scat og Bluewing Airlines

Eftirfarandi eru tíu bestu flugfélögin að mati Airline ratings.

  • Qantas
  • Air New Zealand
  • Emirates
  • Etihad
  • Cathay Pacific
  • Singapore Airlines
  • Virgin Atlantic
  • EVA Air
  • All Nippon Airways
  • Royal Jordanian