Tillögur um skuldaniðurfellingar voru kynntar í ríkisstjórn í morgun. Ráðherranefnd um skuldamál heimilanna hefur fengið afhendar tillögur um skuldamál heimilanna, eftir því sem fram kemur á fréttavefnum Eyjunni . Heimildir VB.is herma hið sama og strax á eftir hafi tillögurnar verið kynntar fyrir öðrum ráðherrum í ríkisstjórninni á fundi hennar.

Væntanlega verða svo haldnir þingflokksfundir á morgun og rétt eftir að þeir hafa verið haldnir munu tillögurnar svo verða kynntar opinberlega klukkan fjögur í Hörpunni.

Eyjan segist hafa heimildir fyrir því að opnuð verði  vefsíða þar sem unnt er að kynna sér gríðarmikið magn af upplýsingum og reikna út áhrif tillagnanna á lán einstakra heimila.