Félag atvinnurekenda (FA) hefur sent atvinnuvegaráðuneytinu bréf til að ítreka kröfu sína frá því í síðustu viku um að ráðuneytið endurgreiði innflytjendum búvöru útboðsgjald vegna tollkvóta. Þetta kemur fram á vefsíðu félagsins .

Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi gjaldið ólögmætt og í andstöðu við stjórnarskrá fyrir skemmstu. Hins vegar segir FA að ráðuneytið hafi í engu brugðist við kröfu félagsins eða einstakra innflutningsfyrirtækja um endurgreiðslu gjaldsins.

„Fyrir liggur að hér er um mikla hagsmuni neytenda að tefla. Í fréttum Stöðvar 2 síðastliðið sunnudagskvöld kom til dæmis fram að smásölukeðjan Hagar á í fyrirframgreiddum en ónýttum innflutningsheimildum um 100 milljónir króna, sem fyrirtækið gæti skilað til neytenda yrði útboðsgjaldið endurgreitt,“ segir á vef félagsins.

Í bréfi sínu ítrekar FA þá afstöðu að ráðuneytinu beri að endurgreiða innflutningsfyrirtækjum öll þau útboðsgjöld sem þau hafi greitt fyrir ónýttar innflutningsheimildir. Jafnframt er sú krafa ítrekuð að endurgreiðslan fari fram tafarlaust til að lágmarka tjón neytenda.