Rarik, Orkubú Vestfjarða (OV) og HS Veitur hækkuðu nú um áramótin gjaldskrá fyrir dreifingu og flutning á raforku. Orkuveita Reykjavíkur og Norðurorka hækkaðu gjaldskrá sínar þann 1. nóvember síðastliðinn. Rafveita Reyðafjarðar hefur tilkynnt um hækkun frá 1. febrúar næstkomandi og hafa þá allar dreifiveitur á landinu hækkað gjaldskrár sínar.

Fjallað er um hækkanirnar á vef Orkuvaktarinnar .