Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 0,18% í dag og endaði í 19096,29 stigum. Þá hefur vísitalan hækkað um 1,38% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Haga, eða um 0,71% í viðskiptum sem hljóða upp á tæpar 50 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 49,35 krónur. Einnig hækkaði gengi bréfa Marel, eða um 0,10% í 81 milljónar króna viðskiptum. Verð á hvert bréf Marel er þá 242 krónur.

Mest lækkaði gengi bréfa Icelandair Group, eða um 0,26% í 256 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvern hlut Icelandair er 38,10 krónur. Þá lækkaði gengi bréfa Eimskip um 1,01% í viðskiptum upp á 100 milljónir króna. Hver hlutur félagsins kostar þá 244,5 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var rúmlega 745 milljónir króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var 4,1 milljarðar króna.