Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland lækkaði um 1,74% í dag og endaði í 1765,97 stigum. Þá hefur vísitalan lækkað um 6,08% frá áramótum.

Í dag hækkaði mest gengi bréfa Eikar, eða um 1,74% í viðskiptum sem hljóða upp á 515 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins nemur 8,75 krónum á hlut. Gengi bréfa Reita hækkaði þá einnig, eða um 1,43% í rúmlega 335 milljóna króna viðskiptum. Verð á hvert bréf nemur þá 85,2 krónum.

Mest lækkaði gengi bréfa Haga, eða um 3,89% í viðskiptum sem hljóða upp á 998 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 45,65 krónur. Eins og Viðskiptablaðið greindi frá í morgun er arðleysisdagur Haga í dag. Gengi bréfa Icelandair Group lækkaði þá einnig, eða um 2,66% í viðskiptum sem hljóða upp á 821 milljónir króna. Verð á hvert bréf félagsins er þá 31,05 krónur.

Heildarvelta á hlutabréfamarkaði í dag var tæplega 4,3 milljarðar króna. Heildarvelta á skuldabréfamarkaði var tæplega 16,6 milljarðar króna.

Hlutabréfavísitala GAMMA lækkaði um 1,4% í dag í 4,3 milljarða króna viðskiptum.

Skuldabréfavísitala GAMMA lækkaði um 0,9% í dag í 14,6 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,5% í 2,2 milljarða króna viðskiptum og óverðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 1,6% í 12,5 milljarða króna viðskiptum.