Guðmundur Jóhann Arngrímsson og Regína Björk Jónsdóttir hafa verið ráðin í tækniþjónustu- og afhendingardeild Gagnaveitu Reykjavíkur (GR) en þau búa bæði þau yfir víðtækri reynslu úr fjarskiptabransanum. GR greinir frá ráðningum þeirra í fréttatilkynningu.

Regína starfaði áður sem viðskiptastjóri hjá Nova en hún er vottaður fjármálaráðgjafi úr Opna háskólanum í Reykjavík frá árinu 2017 auk þess sem hún nam viðskiptafræði við Háskólann í Reykjavík.

Guðmundur starfaði sem verslunarstjóri hjá Vodafone. Hann leggur stund á fjarnám í viðskiptafræði við Háskólann á Akureyri.

„Það er mikill fengur fyrir okkur að fá þau Guðmund og Regínu til starfa og bæta þannig enn meiri þekkingu og hæfni við þann frábæra mannauð sem vinnur nú þegar hjá Ljósleiðaranum." segir Erling Freyr Guðmundsson framkvæmdastjóri Gagnaveitu Reykjavíkur.

Í tilkynningunni segir að með ráðningum Guðmundar og Regínu muni GR auka þjónustu sína við viðskiptavini á einstaklings - og fyrirtækjamarkaði. Þau Guðmundur og Regína hafi bæði þegar hafið störf.