Regluleg laun voru að meðaltali 5,9% hærri á þriðja ársfjórðungi miðað við sama tímabil í fyrra. Þetta kemur fram í tölum Hagstofunnar.

Hækkunin var 6,1% á almennum vinnumarkaði og 5,3% hjá opinberum starfsmönnum. Á sama tímabili hækkuðu laun ríkisstarfsmanna um 5,7% en hjá starfsmönnum sveitarfélaga um 5,0%.

Regluleg laun voru að meðaltali 0,5% hærri á þriðja ársfjórðungi 2013 en í ársfjórðungnum á undan.