Reiknistofa bankanna hefur gert skuldbindandi tilboð um kaup á hluta af eignum Teris, upplýsingafyrirtækinu sem áður hét Tölvumiðstöð sparisjóðanna. Meðal annars er um að ræða netbankalausnir, samþættingarlausnir og ýmsar fjölbankalausnir sem Teris hefur þróað. Teris áformar að útvista öðrum rekstrarþáttum til annarra tæknifyrirtækja sem Reiknistofa bankanna kaupir ekki. Gangi allt eftir munu þeir starfsmenn Teris sem vinna við lausnirnar fylgja með í kaupunum.

Í tilkynningu kemur fram að velta Reiknistofu bankanna eftir sameiningarferlið muni nema 3,7 milljörðum króna á ári. Félagið mun hafa 23% hlutdeild á markaði, en miðað við tölur frá Samkeppniseftirlitinu var tæknikostnaður banka- og sparisjóða um 16 milljarðar króna árið 2010.

Fram kemur í tilkynningunni að óvissa hafi ríkt um framtíð Teris vegna fækkunar viðskiptavina að undanförnu. Með kaupunum sé tryggt áframhaldandi aðgengi smærri fjármálastofnana að ýmsum grunnlausnum sem viðskiptavinir Teris hafa nýtt sér. Það sé mikilvægt fyrir rekstur sparisjóðanna.