Félagið IA tónlistarhátíð ehf., rekstrarfélag tónlistarhátíðarinnar Iceland Airwaves, skilaði 14,6 milljóna hagnaði á síðasta ári samkvæmt ársreikningi fyrir 2012. Árið áður var tap af rekstrinum upp á rúmar 4 milljónir. Grímur Atlason er framkvæmdastjóri félagsins.

Þess má geta að þegar Viðskiptablaðið ræddi við Grím á síðasta ári í tilefni af uppgjöri fyrir árið 2011 þá sagði hann að útlit væri fyrir hagnað 2012. Það stóðst samkvæmt nýlega birtum ársreikningi og var hagnaður af rekstrinum í fyrsta sinn síðan IA tónlistarhátíð ehf. tók yfir rekstur Airwaves árið 2010.