Heildarvelta í Kauphöllinni nam tæpum 15,3 milljörðum króna í dag. Velta með hlutabréf nam um 950 milljónum króna. Velta með skuldabréf nam hins vegar ríflega 14,3 milljörðum.

Á hlutabréfamarkaði voru mest viðskipti með bréf í Marel eða 432 milljóna króna viðskipti. Bréf í fyrirtækinu lækkuðu um 1,01% í þessum viðskiptum. Næst mest viðskipti voru með bréf í N1 en þau námu 206 milljónum króna. Gengi bréfanna hækkaði um 0,4%.

Úrvalsvísitalan lækkaði um 0,22% og stóð í 1.366,03 stigum í lok dags.

Á skuldabréfamarkaði nam velta með óverðtryggð bréf rúmum 12,8 milljörðum króna og ríflega 1,2 milljarða velta var með verðtryggð bréf.