Carlos Slim er ríkasti maður heims samkvæmt tímaritinu Forbes. Eignasafn hans lækkaði um 9,5% í síðustu viku samkvæmt Bloomberg fréttaveitunni. Tapið nemur 6,7 milljörðum dala, 771 milljörðum króna.

Nemur tap Slim mun meira en bandaríska vísitalan sem lækkaði mest í síðustu viku, S&P500, sem lækkaði um 7,2%.