Fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra telur tilkynningu um hlutafjárhækkun Exista frá 8. desember 2008 ólögmæta og muni í framhaldinu bakfæra tilkynninguna og lækka skráð hlutafé Exista.

Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar skráð hlutafé Exista verður fært niður í þá fjárhæð sem áður var skráð hjá stofnuninni eða 14.174.767.632 hluti.

Þá kemur fram að miðað við skráningu hlutafjár hjá fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra, að teknu tilliti til fyrrnefnds úrskurðar, er BBR ehf., félag í eigu Ágústs og Lýðs Guðmundssona, stærsti hluthafi Exista með 52% eignarhlut. Aðrir hluthafar eiga um 5% eignarhlut eða minna í félaginu.

Fram kemur í tilkynningunni að Exista er ósammála úrskurði fyrirtækjaskrár ríkisskattstjóra enda liggi fyrir að framangreind tilkynning var skráð án athugasemda hjá fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra þann 8. desember 2008 og engar athugasemdir hafi borist félaginu frá fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra fyrr en meira en sex mánuðum eftir framangreinda skráningu.

Eins og fram kom í gær ákvað að Exista að afturkalla tilkynninguna eftir að hafa átt í viðræðum við fyrirtækjaskrá ríkisskattstjóra.