Bandaríski gamanleikarinn Robin Williams fannst látinn á heimili sínu í Kaliforníu um hádegisbil að staðartíma í dag. Þetta kemur fram í frétt á fréttavef BBC .

Bandarískir miðlar halda því fram að Williams hafi fallið fyrir eigin hendi. Hann fæddist árið 1951 í Chicago ríki og nam leiklist við Julliard. Hann var frægur fyrir kímni sína og spuna við leik.

Williams lék í fjölda kvikmynda eins og til dæmis Good Will Hunting og Good Morning, Vietnam.