Úrvalsvísitala kauphallar Nasdaq Iceland hækkaði um 0,05% í dag og endaði í 1.887,12 stigum. Gengi bréfa Símans lækkaði um 2,93% og Eimskipafélagsins um 2,21%. Þá lækkaði skráð gengi bréfa Tryggingamiðstöðvarinnar um 7,59%, en í dag var arðleysisdagur hjá félaginu. Bréf Haga hækkuðu um 1,65% og Sjóvár um 1,35%. Velta á hlutabréfamarkaði nam 1.671,8 milljónum króna í dag.

Skuldabréfavísitala GAMMA hækkaði um 0,08% í dag í 5,9 milljarða króna viðskiptum. Verðtryggði hluti vísitölunnar lækkaði um 0,04% en sá óverðtryggði hækkaði um 0,30%.

Vísitala fyrirtækjaskuldabréfa hækkaði um 0,03%í dag í 100 milljóna króna viðskiptum.