Lággjaldaflugfélagið Ryanair Holdings segist ekki ætla að hækka yfirtökuboð sitt í samkeppnisaðilann Aer Lingus Group, segir í frétt Dow Jones.

Talsmaður Ryanair segir að tilboðið hafi ekki enn verið lagt formlega fram og að engar formlegar viðræður við Aer Lingus hafi enn átt sér stað.

Ryanair á 20% hlut í Aer Lingus og mun flugfélagið ekki selja hlut sinn ef ekki verður af yfirtökunni.