Efnahagssvið Samtaka atvinnulífsins (SA) hefur gefið frá sér nýja umfjöllun þar sem leitast er við að svara hvernig hægt sé að minnka vaxtamun á Íslandi.

Í umfjölluninni segir að vaxtamunur sé mikill á Íslandi og kjörin sem standi viðskiptavinum til boða séu ekki samkeppnishæf við það sem gangi og gerist í löndunum í kringum okkur. „Eðlilegt er að menn spyrji hverju sæti? Eru bankarnir of stórir fyrir íslenskt hagkerfi og hagnaður þeirra úr takti við það sem eðlilegt gæti talist eða eru aðrir þættir sem valda því að bankakerfið er kostnaðarsamt og kjörin ef því?“

Íslensku bankarnir ekki stórir í alþjóðlegum samanburði

Fram kemur að hagnað bankakerfisins beri að skoða í samhengi við eigið fé en hagnaður bankanna án óreglulegra liða sé sambærilegur við almenna kröfu á markaði. Íslensku bankarnir séuhvorki stórir í alþjóðlegum né sögulegum samanburði en án þess að taka afstöðu til þess hvort þeir eigi að minnka sé vitað hve mikið þeir geti minnkað. Stærstu bankarnir þrír geti minnað efnahagsreikninginn um 6% en standi vilji til að minnka þá enn frekar þurfi að breyta regluverkinu sem þeir starfi eftir.

„Á meðan að bankar starfa í skjóli loforðs um lausfjárstuðning Seðlabanka og teljast kerfislega mikilvægir er óvíst að vilji standi til þess,“ segir í umfjölluninni.

Ekki við bankana eina að sakast

Þá segir að vaxtamunur sé mikill og eftirsóknarvert væri að minnka hann. Kostnað í bankakerfinu þurfi að minnka með frekari hagræðingu. Það sé þó ekki við bankana eina að sakast því íþyngjandi regluverk og sértækar álögur sem lagðar hafi verið á skili sér í auknum kostnaði.

„Þann kostnað bera viðskiptavinirnir, heimili og fyrirtæki, í formi lakari vaxtakjara. Sértæku skattarnir sem viðskiptabankarnir þrír greiddu fyrir á árinu 2014 eru ígildi um 15% af vaxtamuni bankanna en ef litið er framhjá áhrifum þeirra er vaxtamunur íslensku bankanna svipaður og vaxtamunur annarra norrænna banka.“

Umfjöllunina má lesa í heild sinni hér .