Saga Capital hefur í dag orðið við veðkalli Seðlabanka Íslands frá því í gær og lagt fram viðbótarveð í formi reiðufjár og ríkisskuldabréfa í samræmi við reglur Seðlabankans.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum.

Þar er fullyrt að skuldsetning Saga Capital sé lítil og lausafjárstaða góð „og því átti bankinn ekki í erfiðleikum með að verða við veðkalli Seðlabankans að þessu sinni,“ segir í tilkynningunni.

Þá kemur fram að veðkall Seðlabankans í gær kemur í kjölfar ákvörðunar Fjármálaeftirlitsins um að skuldabréf á hendur gömlu viðskiptabönkunum þremur færu ekki yfir í nýju ríkisbankana.

Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, forstjóri Saga Capital segir í tilkynningunni að sú ákvörðun Fjármálaeftirlitsins hafi komið verulega á óvart, enda kúvending á fyrri ákvörðun.

,,Við erum að fara yfir málið og meta hugsanlegar afleiðingar, en Saga Capital er ekki í neinni hættu ef staðið er við gerða samninga ,“ segir Þorvaldur Lúðvík í tilkynningunni frá bankanum.

„Það er ekki gott að átta sig á regluverkinu þessa dagana en ég treysti því og trúi að eftirlitsaðilar og ráðamenn séu að vinna ötullega að lausnum.“