Fyrirtækjaráðgjöf Saga Capital telur að yfirtökutilboð Lur Berri Iceland ehf. til hluthafa Alfesca sé sanngjarnt fyrir hluthafa, sér í lagi ef litið er á kennitölur sambærilegra fyrirtækja á markaði og núvirt sjóðstreymi.

Þetta kemur fram í tilkynningu til Kauphallarinnar en í tengslum við yfirtökutilboðið hefur Saga Capital unnið greinargerð um álit sitt á fram komnu yfirtökutilboði og skilmálum þess, fyrir hönd stjórnar Alfesca. Yfirtökutilboðið er á genginu 4,5 á hlut.

Í greinargerðinni eru fjárfestar eindregið hvattir til að kynna sér efni yfirtökutilboðs Lur Berri Iceland sem og efni greinargerðar þessarar í heild sinni, forsendur hennar og fyrirvara. Þá kemur einnig fram að tekið sé mið af erfiðum aðstæðum á íslenskum fjármálamarkaði og horft er til yfirtökutilboða á Íslandi undanfarin ár.

„Tilboðsverðið svarar til hæsta verðs sem samstarfsaðilarnir hafa greitt fyrir hluti í Alfesca síðustu sex mánuði,“ segir í tilkynningunni.

„Það er 32,4% hærra en síðasta viðskiptaverð þann 28. maí 2009 sem var sá dagur sem tilkynnt var um fyrirhugað samstarf og samstarfsaðilanna um stjórn og rekstur Alfesca hf. Ennfremur er tilboðsverðið 25,3% hærra en meðaldagslokaverð síðustu sex mánuði þar á undan.“

Fram kemur í yfirtökutilboðinu að stefnt sé að afskráningu hlutabréfa Alfesca í Kauphöllinni en það kann að hafa áhrif á verð hlutabréfanna, verðmyndun þeirra, með hvaða hætti verður unnt að eiga viðskipti með þau í framtíðinni sem og þrengingu á hópi fjárfesta sem heimild hafa til fjárfestingar í hlutabréfunum.

Lur Berri Iceland er íslenskt einkahlutafélag í eigu franska félagsins Lur Berri Holding SAS. Þann 28. maí 2009, keypti Lur Berri Iceland ehf. 171.371.927 hluti í Alfesca sem samsvarar 2,92% af útgefnu hlutafé og 2,93% af atkvæðisrétti.