Í frétt á heimasíðu FÍB er gagnrýnt harðlega hvernig fjármálaráðuneytið stendur að útreikningum um áhrif nýjustu eldsneytishækkanna. ,,Ef fulltrúar stjórnvalda fara út í svona samanburðarfræði þá verður að gera þá kröfu að ekki sé aðeins haldið að almenningi þeim samanburði sem telst jákvæður út frá sjónarhóli pólitískra spunameistara," segir í fréttinni.

Í nýjasta Vefriti fjármálaráðuneytisins er m.a. farið yfir hækkanir á vörugjöldum á eldsneyti 29. maí sl., sem hækkaði bensín um 12,50 krónur og dísilolíu um 6,20 krónur á hvern lítra.  Í sömu frétt er fjallað um eldsneytisverð víða í Evrópu og um þann samanburð stendur eftirfarandi vefritinu:  ,,Viðbrögð við hækkuðum vörugjöldum voru eins og við var að búast en rétt er að halda til haga nokkrum staðreyndum um málið. Þrátt fyrir þessar hækkanir er verð á eldsneyti á Íslandi enn með því ódýrasta í Evrópu...“

Ekki horft til þess hve veikt gengið er núna

FÍB telur að þessi samanburður gangi út frá gengi íslensku krónunnar, sem er sögulega veik um þessar mundir.  Reiknimeistarar fjármálaráðuneytisins reikna með Evru-gengi upp á um 173,50 krónur og út frá þeim forsendum er dýrasta bensínið í Hollandi eða um 250 krónur á hvern lítra en algengasta verð á bensíni hér á landi er 181,30 krónur en þjónustuverðið er 186.30 krónur.

,,Þessi munur virðist Íslendingum í hag en við nánari samanburð þá kemur annað í ljós.  FÍB hefur fengið ábendingu um það að lágmarkslaun í Hollandi eru 1.264,80 Evrur á mánuði en lágmarkslaun á Íslandi eru 145.000 krónur á mánuði.  Út frá þessum sanaburði fær Hollendingur á lágmarkslaunum 875 lítra bensíni fyrir mánaðarlaunin sín í Hollandi en Íslendingurinn á lágmarkslaunum vinnur sér aðeins inn fyrir um 800 lítrum.  Þarna munar 75 lítrum af bensíni á mánuði eða 13.600 krónur," segir FÍB.

Í vefritinu kemur fram að hlutfall skatta í eldsneytisverði hér á landi sé „aðeins“ ríflega 50% af hverjum seldum lítra.  Til samanburðar má þess geta að ef gengi íslenskrar krónu væri núna líkt og það var fyrir um 15 mánuðum þá væri skattahlutfallið tæplega 60%.