Bandaríkin saka Rússa um að nýta sér orku sína til þess stýra Úkraínu. Rússar vara Evrópumenn við því að þeir muni hugsanlega þurfa að draga úr framboði af gasi vegna orkuskulda Úkraínumanna.

Deilan í Úkraínu virðist vera að magnast að nýju. Nú hefur Atlantshafsbandalagið sýnt myndir af rússneskum hermönnum flykkjast að landamærum Úkraínu og fullyrt að myndirnar séu ósviknar.

Myndirnar voru af um 40 þúsund hermönnum og voru teknar seint í mars og byrjun apríl.

BBC greindi frá.