Velta í dagvöruverslun jókst um 2,5% á föstu verðlagi í júní miðað við sama mánuð í fyrra og jókst um 8,9% á breytilegu verðlagi. Leiðrétt fyrir árstíðabundnum þáttum jókst velta dagvöruverslana í júní um 1,2% frá sama mánuði í fyrra. Verð á dagvöru hefur hækkað um 6,2% á síðastliðnum 12 mánuðum. Sala á raftækjum jókst um 10,6% í júní á föstu verðlagi og um 10,5% á breytilegu verðlagi.Verð á raftækjum lækkaði um 0,1% frá júní 2011.

Sala áfengis jókst um 6,0% í júní miðað við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi og um 11,4% á breytilegu verðlagi.. Verð á áfengi var 5,1% hærra í júní síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra.

Velta húsgagnaverslana dróst saman um 6,3% í júní frá sama mánuði fyrir ári á föstu verðlagi og um 2,1% á breytilegu verðlagi. Verð á húsgögnum var 4,5% hærra í júní síðastliðnum miðað við sama mánuð í fyrra. Velta í sölu skrifstofuhúsgagna dróst saman um 9,0% í júní síðastliðnum samanborið við sama mánuð í fyrra á föstu verðlagi. Velta sérverslana með rúm jókst um 26,7% á föstu verðlagi.

Velta skóverslunar jókst um 16,8% í júní á föstu verðlagi og um 19,5% á breytilegu verðlagi miðað við sama mánuð fyrir ári. Verð á skóm hækkaði um 2,3% frá júní í fyrra.