Bentley
Bentley
© Aðsend mynd (AÐSEND)
Sala á lúxusvörum er að aukast á alþjóðavísu og er vöxturinn á árinu áætlaður um 8% og verður heildarvirði seldra lúxusvara á árinu um 164 milljarðar punda eða um 30 þúsund milljarðar króna. Kína drífur þennan vöxt áfram en þar er um hálf milljón milljónamæringa og kaupa þeir um 12%af lúxusvörum sem seldar eru á alþjóðavísu samkvæmt BBC. Spár gera ráð fyrir að árið 2020 verði Kína stærsti markaður lúxusvara með um 44% af heildarsölunni.