Í gær lauk deildarfundi í Búðardal þar sem kosið var um samruna Mjólkursamsölunnar í Reykjavík og Mjólkurbús Flóamanna. Sameiningin var samþykkt þar með 23 atkvæðum en 6 voru á móti og hafa því öll aðildarfélög MS samþykkt samruna MS og Mjólkurbús Flóamanna utan eitt, sem er fulltrúafundur MBF.

Í dag verður haldinn síðasti fundurinn um sameininguna, sem er fulltrúafundur í Mjólkurbúi Flóamanna. Sameiningin hefur reyndar þegar verið samþykkt af aðalfundi MBF, en formsins vegna þarf fulltrúafundur að samþykkja samrunann.