Þess er beðið að sparisjóðirnir ljúki uppgjörum sínum svo að halda megi áfram sameiningaviðræðum þeirra að því er kemur fram í ársreikningi Byrs. Þann 4. desember sl. undirrituðu stjórnir Byrs, Sparisjóðsins í Keflavík og SPRON viljayfirlýsingu þess efnis, að hefja undirbúning og vinnu sem miðar að því að sameina sjóðina.

Endanlegrar niðurstöðu má því vænta innan tíðar að því er segir í uppgjöri Byrs. Samkvæmt viljayfirlýsingunni, miðast samruni samningsaðilanna, nái hann fram að ganga, við 1. janúar 2009.